Um VJI

Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar (VJI) var stofnsett árið 1960. Stofan er í eigu nokkurra starfsmanna hennar og þar starfa um 20 manns.

VJI annast hönnun og ráðgjöf sem varðar raforkukerfi og raflagnir smáspennu, lágspennu eða háspennu og auk þess áætlanagerð og eftirlit með framkvæmdum.  Starfsemin nýtur góðs af þeirri áralöngu reynslu og þekkingu sem hefur safnast í yfir 50 ára samfelldum rekstri.  

VJI veitir einnig fjölbreytta og víðtæka rekstrar- og fjármálaráðgjöf.  Rekstrarráðgjafar VJI hafa áratuga reynslu og þekkingu á íslensku atvinnulífi og hafa komið að rekstri, stjórnun og stjórnarsetu ýmissa fyrirtækja í hinum ýmsu atvinnugreinum hér á landi sem erlendis.

Viðskiptavinir eru opinberar stofnanir, einkaaðilar og félög við rafmagnshönnun mannvirkja sem byggð eru víða um land.

Meðal viðskiptavina má nefna þessa:

.Landspítali Háskólasjúkrahús
.Landsbanki Íslands
  HS orka (Hitaveita Suðurnesja)
  HS veitur (Hitaveita Suðurnesja)
  Orkuveita Reykjavíkur
  Orkubú Vestfjarða
.Norðurál
.Rio Tinto Alcan
 Landsvirkjun
  Landsnet
  Rarik
  Framkvæmdasýsla ríkisins
  Reykjavíkurborg
  Alcoa