Starfssvið


Starfsfólk VJI hefur komið að og lokið fjölda verkefna á þeim 50 árum sem stofan hefur verið starfrækt.

Hönnun raflagna á öllum spennustigum og iðntölvustýringar eru í mjög stóru hlutverki í rekstri stofunnar. 

Starfsmenn sinna einnig fjölda  verkefna á sviði orkumála svo og rekstrartengdum verkefnum, þá oftast tengd orkugeiranum eða iðnaðinum í landinu.  Þessi starfsemi hefur farið vaxandi undanfarin misseri.

Starfsemi fyrirtækisins má skipta í nokkra megin flokka.  Nefna má ráðgjöf og hönnun jarðvarmavirkjana, vatnsaflsvirkjana, annarra orkumannvirkja, vatnsveitna og hitaveitna, samgöngumannvirkja, iðnaðar-, stjórn- og skjákerfa, húsbygginga og verksmiðja, ljósleiðara- og fjarskiptakerfa.

Hönnun raflagna á öllum spennustigum og iðntölvustýringar eru í mjög stóru hlutverki í rekstri stofunnar. 

Starfsmenn sinna einnig fjölda  verkefna á sviði orkumála svo og rekstrartengdum verkefnum, þá oftast tengd orkugeiranum eða iðnaðinum í landinu.  Þessi starfsemi hefur farið vaxandi undanfarin misseri.

Ýmis viðhaldsverkefni mætti nefna, áætlana- og matsverkefni, verkeftirlit og gangsetningar.  Arðsemismöt og ýmis verkefni sem tengjast rekstri fyrirtækja eða starfsgreina, eru verkefni sem sífellt skipa stærri sess í rekstri stofunnar.

Hér til hliðar eru krækjur inn á ítarlegri umfjöllun um nokkra megin flokka í rekstri fyrirtækisins.