Eldir fréttir


Farið var í árshátíðarferð VJI til Bilbaó á Spáni í október síðast liðnum




Yfir 30 manns, starfsmenn VJI og makar þeirra fóru í ferðina, en fararstjóri var Kristinn R Ólafsson.

Desember 2008


Samtök aldraðra byggja meira við Sléttuveginn


Samtök aldraðra hafa valið VJI til að hanna raflagnir í fjölbýlishús fyrir aldraðra sem nú er verið að byggja við Sléttuveg nr. 29-31 í Reykjavík.  Húsið verður  9450 fermetrar að stærð, með 58 íbúðum.  VJI sá einnig um raflagnahönnun fyrir Samtök aldraðra í húsi þeirra við Sléttuveg nr. 19-23 sem tekið var í notkun í mars árið 2007.
Ágúst 2008


Eymundur ráðleggur um rafvæðingu í Karabíska hafinu.


Eymundur Sigurðsson verkfræðingur hjá VJI er nýkominn úr vettvangsferð til eyjunnar Dominica í Karíbahafi. 
VJI vinnur þar að ráðgjafarverkefni í samstarfi við Fjarhitun og franska verkfræðistofu við undirbúning að byggingu 100 MW jarðhitavirkjunar og eflingu rafdreifikerfsins. Verkefnið er greitt úr evrópskum þróunarsjóðum.
Mikill jarðhiti er virkjanlegur á þessum slóðum en mestallt rafmagn er nú framleitt með díselvélum.
Rafmagnsverð er mjög hátt og stendur hagvexti og framþróun mjög fyrir þrifum.



Myndin er tekin í Rosseau, höfuðstað Dominica og gefur hugmynd um rafdreifikerfið í þessu fátæka  landi.







Mikill jarðhiti er á Dominica.  Jónas Matthiasson jarðhitaverkfræðingur hjá Fjarhitun í vettvangsskoðun á eyjunni Dominica.  Með honum til vinstri á myndinni er Alberto Manuel, starfsmaður orkumálaráðuneytis Dominica.

Júlí 2008








VJI vinnur útboð um eftirlitsverk

VJI í samstarfi við Fjarhitun hefur verið valin til að annast verkeftirlit vegna byggingar vatnsveitu og fráveitu á vegum OR í Borgarfirði og á Kjalarnesi.  Framkvæmdir og eftirlit með þeim mun standa fram á árið 2010.
Júní 2008


VJI kannar jarðhitafjárfestingar í Tyrklandi

Arnþór Þórðarson rekstrar- og fjármálaráðgjafi hefur að undanförnu unnið að athugun á fjárfestingakostum í jarðhita í Tyrklandi í samvinnu við Fjarhitun og tyrkneskt ráðgjafarfyrirtæki.  Verkefnið kemur í kjölfar útboðs sem IFC (sem er hluti Alþjóðabankans) stóð fyrir í desember sl.  Verkefnið er greitt úr íslenska tækniaðstoðarsjóðnum sem vistaður er hjá IFC.
Maí 2008






Arnþór (lengst til hægri) ásamt Sigþóri Karlssyni og Þorleik Jóhannessyni frá Fjarhitun (fyrir miðri mynd) auk tyrkneskra ráðgjafa frá 3B Plan í Ankara.  


Framkvæmdir hafnar við umbætur raflagnakerfis

Fyrsta skóflustungan í endurnýjun raflagnakerfis á Keflavíkurflugvelli var tekin á föstudag. Það var Hitaveita Suðurnesja sem sá um það í kjölfar kynningarfundar um verkið, en skv. lögum sem sett voru á síðasta ári skal rafkerfi á umráðasvæði Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar vera samræmt íslenskum kröfum ekki síðar en 1. október 2010.

 

 

 

 

 

 

Fyrsti áfangi verksins er endurnýjun rafdreifikerfis á iðnaðarhluta svæðisins, en einnig er áætlað að taka hluta íbúðarsvæðis í þeim áfanga. Fyrsta áfanga verksins mun vera lokið í september og er ráðgert að eldra rafdreifikerfi iðnaðarsvæðisins verði aftengt þann 14. nóvember þessa árs.

Í beinu framhaldi verður farið í vinnu við aðra hluta svæðisins og verður verkið unnið samfellt til verkloka.


Frá skóflustungunni og kynningarfundinum. VF-myndir/Þorgils
Í fréttatilkynningu kemur fram að undirbúningsvinna hafi staðið yfir undanfarna mánuði, en Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar, í samstarfi við Hitaveitu Suðurnesja og Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, hefur séð um hönnun nýja rafdreifikerfisins. Framkvæmd verksins mun vera í höndum Íslenskra Aðalverktaka.
Dags. 16.06.08



Óvissuferð 2008

Föstudagurinn 23 maí 2008.
Starfsmenn hittust á kaffistofu VJI klukkan 15:30 að staðar tíma. Þaðan var haldið niður að skautahöll. Sumir héldu að við værum á leiðinni á skauta aftur en aðra grunaði að hér væri um skipulagt gabb að ræða. Það reyndist rétt. Við skautahöllina Óvissuferð 2008 048.jpg beið eftir okkur rúta og ekið var af stað út í óvissuna. Óvissan entist þó ekki mjög lengi því stefnan var tekin á Þingvelli. Þegar þangað var komið arkaði maður inn í rútuna og dró alla út. Ratleikur var í uppsiglingu. Skipt var í tvö lið og haldið af stað um Þingvelli þvera og endilanga. Tveimur tímum og allnokkrum símtölum og heilabrotum síðar var búið að leysa nánast allar þær þrautir sem fyrir voru lagðar.
Næsti viðkomustaður var Laugar Spa þar sem að starfsmenn slöppuðu vel af og snæddu síðan kvöldverð yfir vangaveltum um daginn og veginn. Að því loknu var klukkan komin langt yfir háttatíma hjá ungum börnum svo að það var haldið heim á leið, afslöppuð og svolítið völt.

Dags. 27.05.08



Heimsókn nemenda Iðnskólans í Hafnarfirði

12. febrúar fékk Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar heimsókn nemenda Iðnskólans í Hafnarfirði. Var það hópur nemenda í tækniteiknun sem vann að verkefni í áfanganum Gæðastjórnun / Teiknistofutækni. Við óskum þeim Guðrúnu, Ingu Maríu og Elísabetu góðs gengis í náminu í framtíðinni og vonum að heimsóknin hafi komið að gagni.

Dags. 12.02.08



Hljómahöllinn í Reykjanesbæ

Fyrsta skóflustunga að Hljómahöllinni í Reykjanesbæ var tekin við hátíðlega athöfn laugardaginn 26. janúar. Athöfnin markar upphaf framkvæmda við Hljómahöllina en hún er endurbygging Stapa ásamt nýbyggingu sem mun rúma Poppmynjasafn Íslands og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Eignarhaldsfélagið Fasteign sér um framkvæmdina en arkitekt hússins er Guðmundur Jónsson. Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar sér um hönnun raflagna og VGK Hönnun sér um hönnun burðarþols og lagna.
Reiknað er með því að Hljómahöllin verði formlega tekin í notkun haustið 2009.
Dags. 26.01.08


Viðbyggingar við Heilbrigðisstofnun Suðurlands


25. janúar var fyrsti áfangi viðbyggingar við Heilbrigðisstofnun Suðurlands formlega tekinn í notkun. Fyrsti áfangi hússins er hjúkrunardeild sem staðsett er á annarri hæð en eftir er að taka í notkun hjúkrunardeild á þriðju hæð og heilsugæslu á fyrstu hæð.
Um er að ræða 5250 fermetra viðbyggingu, arkitekt hússins er Helgi Hjálmarsson hjá Teiknistofunni Óðinstorgi en Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar sá um hönnun rafkerfa.

Dags. 25.01.08























Íslensku byggingalistarverðlaunin 2007
Íslensku byggingarlistarverðlaunin 2007 voru afhent laugardaginn 20. október sl. og komu í hlut VA arkitekta fyrir Lækningalind, Bláa lóninu. Geir H. Haarde forsætisráðherra afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum, laugardaginn 20. október. Samhliða afhendingunni var opnuð sýning á þeim tíu verkefnum sem þóttu koma til greina og útgáfa bókar um þessi sömu verkefni.

Alls var 51 verkefni tilnefnt til verðlaunanna en miðað var við verkefni á íslenskri grundu; mannvirki, skipulag og ritverk um íslenska byggingarlist sem lokið hafði verið við frá ársbyrjun 2005 eða síðar. Valnefnd skipuð þremur arkitektum fór yfir tilnefnd verkefni. Valdi nefndin tíu sem þóttu koma til greina og fengu þau viðurkenningu. Þessi verk eru, auk Lækningalindarinnar: Aðalstræti 10, Reykjavík, sambýli fatlaðra við Birkimörk í Hveragerði, innsetning Gjörningaklúbbsins, göngubrýr yfir Hringbraut, skólahús við Háskólann á Akureyri, íbúðarhúsið Hof, Höfðaströnd, íbúðir við Frakkastíg, íþróttaakademían í Reykjanesbæ og viðbygging Safnasafnsins á Svalbarðseyri.

Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar sá um raflagnahönnun í þremur af þessum tíu verkefnum og tókum auk þess þátt í lýsingarhönnun með arkitektum verkanna og erum við mjög stolt af því. Þessi verkefni eru Aðalstræti 10, Hof á Höfðaströnd og Íþróttaakademían í Reykjanesbæ.
Dags. 27.12.07


Útilýsing í dreifbýli
Sveitarfélagið Fljótsdalshérað hefur fengið Austurlandsdeild VJI til að aðstoða við hönnun, útboð og eftirlit vegna útilýsingar við yfir sjötíu sveitabæi á Fljótsdalshéraði. Að þessu verki loknu verður komin stórbætt útilýsing og þar með aukið umferðaröryggi í sveitarfélaginu.
Dags. 20.12.07

Enn bætist í góðan hóp starfsmanna VJI
Eymundur Sigurðsson verkfræðingur hóf störf hjá VJI í byrjun september. Eymundur er kominn „heim“ ef svo má segja, því að hann vann hér hjá okkur snemma á sínum starfsferli. Að undanförnu hefur hann starfrækt Verkfræðistofuna Straum á Egilsstöðum þar sem hann er búsettur. Þar áður starfaði hann um árabil hjá Landsvirkjun og síðar Landsneti sem yfirmaður kerfisrannsókna. Þar hafði hann umsjón með kerfisrannsóknum, áætlunargerð, mati á fjárfestingum, samningamálum varðandi nýja stóriðju, ýmsum grunnrannsóknum sem m.a. tengjast skipulagsmálum og matsvinnu vegna umhverfisáhrifa.
Við bjóðum Eymund velkominn til starfa.

Dags. 07.12.07

Álfheimar 74 – Glæsibæjarlóðin
Miklar byggingaframkvæmdir standa nú yfir á lóðinni við Glæsibæ í Álfheimum. Þar verður senn fullbyggð tæplega 10 þús. fermetra skrifstofu- og þjónustubygging á 9 hæðum. Þarna verður til húsa Lýðheilsustöð og líkamsræktarmiðstöð Hreyfingar á þremur hæðum, læknastofur og ýmis önnur þjónustustarfsemi. Þegar er risið 8000 fermetra bílastæðahús sem tengja mun hinn nýja Glæsibæ og þann gamla. ÍAV byggir húsið og VJI annast grunn- og fullnaðarhönnun raflagna og lýsingar auk þess að hanna öryggiskerfi, hljóðkerfi og brunaviðvörunarkerfi í þetta mannvirki.



VJI opnar starfsstöð á Austurlandi
VJI hefur stofnað starfsstöð á Austurlandi og sinnir þar margvíslegri verkfræðiþjónustu fyrir opinbera aðila, stofnanir og einstaklinga. Eymundur Sigurðsson verkfræðingur stýrir starfsemi okkar frá bækistöð VJI á Egilsstöðum.











VJI hannar Vatnsverksmiðuna í Þorlákshöfn
Vatni úr Ölfusbrunni verður tappað á flöskur í nýrri verksmiðju Icelandic Water Holdings ehf. sem nú er verið að byggja í Þorlákshöfn. Verksmiðjan verður 6600 fermetrar að stærð og er ráðgert að hún verði tilbúin að ári. Hún mun í fyrsta áfanga anna átöppun hundrað milljón lítra af vatni á ári, fimmfalt meira en núverandi verksmiðja í Þorlákshöfn, og veita 35-40 manns atvinnu. VJI annast raflagnahönnun sem undirverktaki Jáverks hf. sem byggir verksmiðjuna.

Nýir starfsmenn
hjá VJI
Friðþjófur Helgi Strandberg rafmagnstæknifræðingur hóf nýlega störf hjá VJI. Friðþjófur lauk B.Sc. prófi frá Syddansk Universitet í Danmörku sl. vor. Áður hafði Friðþjófur lokið námi í rafvirkjun og raungreinadeildarprófi frá Tækniháskóla Íslands. Hjá VJI mun hann einkum vinna á sviði dreifingar og flutnings raforku.

Karen Ósk Magnúsdóttir rafmagnsverkfræðinemi starfar hjá VJI í sumar við raflagnahönnun. Karen stefnir að því að ljúka B.Sc. prófi í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands næsta vor. Hún verður í hlutastarfi meðfram náminu í vetur.
• Ragnheiður Magnúsdóttir kom til starfa sem tækniteiknari í júlí sl. Hún lauk tækniteiknaraprófi frá Iðnskólanum í Hafnarfirði í vor. Áður hafði Ragnheiður lokið prófi í hönnun frá sama skóla.

Við bjóðum Friðþjóf, Karen og Ragnheiði velkomin til starfa.

Dags.05.09.07


Verkefstjórnunarnámskeið
Um helmingur starfsmanna VJI fór nýlega á námskeið í verkefnastjórnun í umsjón okkar ágæta Tryggva Sigurbjarnarsonar. Þar var farið í hagnýtar aðferðir við gerð verkefnisáætlana og annars er lýtur að stjórnun verkefna. Tryggvi er rafmagnsverkfræðingur jafnframt því að vera sérfræðingur í stjórnun verkefna. Hann þekkir vel til starfsemi okkar og gat þvi miðlað af reynslu sinni og ráðlagt okkur á einkar fróðlegan og skemmtilegan hátt.
Dags.26.05.07

Árshátíð VJI
Árshátíð VJI var haldin með pompi og pragt þann 5. maí sl. í sveitasælunni á Hótel Heklu fyrir austan Selfoss. Dagskrá hófst snemma eða um 15:00 þegar ráðgjafi á vegum hótelsins fór með hópinn í gegnum ýmsar þrautir bæði úti og inni. Þátttakendum var skipt í tvo hópa sem látnir voru leysa ákveðin verkefni í þeim tilgangi að efla samvinnu og liðsheild og þótti takast mjög vel. Eftir hópeflið gafst fólki kostur á að endurhlaða batteríin í heita pottinum.

Kvölddagskrá hófst með fordrykk í fundarsal hótelsins og í framhaldi var snæddur dýrindis þriggja rétta kvöldverður, krabbasalat, lambalundir og súkkulaðikaka með ferskum jarðarberjum. Nokkrir starfsmenn VJI sýndu leikritið um Öskubusku sem vakti mikla lukku og er ljóst að meðal starfsmanna eru margir efnilegir leikarar sem klárlega hafa meðfædda hæfileika til að spila af fingrum fram en leikritið hafði aldrei verið æft áður en það var sýnt. Diskótekið Dollý sá um tónlistina og dunaði dansinn fram á nótt.

Það voru orkumiklir starfsmenn sem mættu til vinnu á mánudagsmorgni eftir viðburðaríka helgi í sveitasælunni og kunnum við Hótel Heklu okkar bestu þakkir fyrir frábæra þjónustu.

Dags. 10.05.07




Nýtt svið - Fjármála- og rekstrarráðgjöf
Starfsemi hins nýja sviðs fer vel af stað. Arnþór Þórðarson verkfræðingur og rekstrarhagfræðingur, sem lengi hefur starfað á sviði fjármála og erlendra verkefna, kom til starfa hjá VJI í vetur og vinnur að margvíslegum verkefnum fyrir innlenda og erlenda aðila. Arnþór stjórnar jafnframt fjármálum stofunnar.
Dags.04.05.07

Kalkþörungaverksmiðja opnuð
Í apríl var Kalkþörungaverksmiðjan á Bíldudal tekin formlega í notkun. Fulltrúi VJI mætti á staðinn til að fagna þessum áfanga. Starfsmenn VJI hönnuðu rafkerfi verksmiðjunnar. Sambandið við Guðmund verksmiðjustjóra, Björgun og hina erlendu eigendur var afar ánægjulegt og gaman að sjá þessa glæsilegu verksmiðju komna í gang.
Við óskum eigendum og starfsmönnum til hamingju með verksmiðjuna.

Dags.01.05.07

Nýjir starfsmenn á þessu ári:
•  Davíð Pétur Stefánsson hóf í vetur störf hjá VJI sem raflagnahönnuður. Davíð er rafvirki að mennt og starfaði áður á Landspítala háskólasjúkrahúsi þar sem hann þekkir afar vel til í rafkerfum þessa stóra og fjölbreytta spítala. Við bjóðum Davíð velkominn í hópinn.

•  Magnús Halldórsson hóf í vetur störf hjá VJI. Hann mun starfa að ýmsum verkefnum s.s. teiknun og forritun. Við bjóðum Magnús velkominn í hópinn.
Dags.18.04.07

Ingigerður keilumeistari VJI annað árið í röð
Keilumót VJI fór fram í mars sl. leikið var í tveggja manna liðum. Baráttan um vinningssæti var hörð og spennandi. Leiknar voru tvær umferðir og sigur úr bítum báru þau Ingigerður og Bernharð.
Dags.01.04.07

Holtagarðar – gengur í endurnýjun lífdaganna með hjálp VJI
VJI
hefur tekið að sér umsjón með raflagnahönnun á þeim breytingum sem nú standa yfir við Holtaveg 10, Reykjavík (sem áður hýsti m.a. IKEA og Rúmfatalagerinn). Holtagarðar voru byggðir fyrir um 20 árum og hýsa í dag verslanir, vörugeymslur og skrifstofur. Ráðgert er að stækka efri hæð hússins umtalsvert með því að byggja milligólf og byggja við húsið til norðurs og vesturs. Við breytingarnar stækkar húsið úr 30 þúsund fermetrum í 37 þúsund fermetra. Bílastæðum verður auk þess fjölgað með nýjum bílastæðapalli.  Eftir breytingar mun húsið áfram hýsa verslunir og tengda þjónustu. Vörumóttaka og skrifstofur verða reistar við norðurhlið byggingar sem tengist og þjónar þessari starfsemi. Á vesturhlið byggingarinnar verður núverandi viðbygging fjarlægð og í staðinn kemur nýtt fordyri eða aðalinngangur. Á norðurhlið hússins verða núverandi vöruhurðir fjarlægðar og ný vörumóttaka og skrifstofur byggðar í staðinn.  Sem fyrr segir mun VJI annast alla hönnun rafkerfisins í þetta mikla hús.
Dags.16.01.07

Nýr starfsmaður
Hafþór Ólason hóf nýlega störf hjá VJI sem raflagnahönnuður. Hafþór er rafvirki að mennt og starfaði áður hjá ÍAV og Rafmiðlun og þar áður hjá Geisla í Vestmannaeyjum. Við bjóðum hann velkominn í hópinn.
Dags. 10.12.06

Kalkþörungaverksmíðja rís á Bíldudal
Nú er verið að reisa byggingu fyrir kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal. Gert er ráð fyrir að verksmiðjan taki til starfa síðar á árinu. Þegar hún verður komin í fullan rekstur verður framleiðslan um 50 þúsund tonn af unnum kalkþörungaafurðum. Hráefni verksmiðjunnar eru kalkþörungar sem dælt er upp af botni Arnarfjarðar. Nýja verksmiðjubyggingin er 2700 m2 að stærð. Meðfylgjandi mynd af uppkominni stálgrind tók Guðmundur V. Magnússon verksmiðjustjóri.
VJI hannar rafkerfið í verksmiðjuna.

Dags.22.06.06

VJI auglýsir eftir starfsmanni
Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar óskar eftir að ráða rafmagnsverkfræðing eða rafmagnstæknifræðing til starfa. Við leitum að áhugasömum starfsmanni til að vinna með okkur við hönnun háspennu-, lágspennu-, smáspennu- eða stjórnkerfa.
Upplýsingar veitir Magnús Kristbergsson í síma 560 5400, netfang magnus@vji.is
Umsóknir skulu berast til VJI, Síðumúla 1, 108 Reykjavík fyrir 24. janúar 2005

VJI hefur verið í mikilli sókn að undanförnu og má geta þess að síðastliðið sumar var ráðinn tækniteiknari Sonja Ragnarsdóttir og nú í janúar hefur störf Óskar Þorsteinsson raflagnahönnuður.
Dags.15.01.06

Nýtt orkuver í Svartsengi OV6
Hitaveita Suðurnesja Hf hefur ákveðið að byggja nýtt orkuver í Svartsengi en þar eru þegar nokkur orkuver í eigu Hitaveitunnar. Fyrirhugað Orkuver sem hlýtur nafnið orkuver 6 á að vera 30MW raforkuver.
Hitaveitan hefur samþykkt tilboð ráðgjafahópsins sem þessi fyrirtæki skipa: VTR verkfræðingar, Fjarhitun, Arkitektastofan OÖ, Landark og Verkfræðistofa Suðurnesja.
Vinna við undirbúning og hönnun OV6 hefst nú þegar og er ráðgert að verklok verði í lok árs 2007.

Dags.13.01.06

80MVA vélaspennar Reykjanesvirkjunar
Nú eru báðir vélaspennar Reykjanesvirkjunar komnir til landsins, aðeins hefur þó tekist að koma öðrum spenninum á virkjunarsvæðið þar sem að aðstæður þurfa að vera góðar þ.e. veður og færð til að hægt sé að keyra með spennana út á Reykjanes.
Spennarnir koma frá Ganz í Ungverjalandi og vega hvor um sig að flutningsþyngd 113 tonn en að heildarþyngd 182 tonn því að dæla verður u.þ.b. 46 tonnum af olíu á þá eftir uppsetningu.

Dags.10.01.06

Íþróttaakademian Reykjanesbæ
Þann 1. desember var var fyrsti áfangi Íþróttaakademiunnar í Reykjanesbæ vígður. Sá áfangi sem nú er lokið má líkja við sigur í íþróttakappleik þ.e. samhent lið hönnuða, verktaka og annarra sem að verkinu komu hafa unnið fullnaðarsigur.






VJI
sá um hönnun raf- og fjarskiptalagna í Akedemíunni, en áætlaður heildar kostnaður við bygginguna nemur 455 mKr.-

Dags.02.12.05

Árshátíð VJI
Árshátíð VJI var haldin helgina 3-7 nóvember og var erlendis að þessu sinni, farin var helgarferð sem teygði sig frá fimmtudegi til mánudags.
Heppnaðist ferðin sérlega vel í alla staði og ríkti mikil og góð stemming í hópnum. Árshátíðin sjálf var síðan haldin í hátíðarsal Hotel Aveneda Palace og voru bæði umgjörð og matur eins og best verður á kosið.

Dags.09.11.05

 

Óvissuferð Starfsmannafélags VJI
Starfsmannafélag VJI hefur gert að að árlegum viðburði að fara í óvissuferð til að efla starfsandann og samheldnina í hópnum. Hafa þessar ferði mælst vel fyrir og var farið í Hvammsvík að þessu sinni þar sem spilaðar voru nokkrar holur í golfi við misjafnan árangur þó svo að gleðin hafi verið í fyrirrúmi. Að loknu golfi var síðan grillað og sungið fram eftir kvöldi þar til haldið var heim á leið.
Starfsmannafélag VJI vill þakka rútubílstjóranum sérstaklega fyrir umburðarlyndi og þáttöku í fjöldasöng :)

Dags.16.09.05

Við erum flutt...
Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar flytur í nýtt húsnæði um næstu helgi, 7. og 8. maí. Við förum þó ekki langt, verðum enn að Síðumúla 1 en förum á
1.hæð í efra húsinu á lóðinni.

Við höfum einnig tekið í notkun nýtt símanúmer sem er 560 5400 og faxnúmer sem er 560 5410. Allir starfsmenn okkar hafa fengið beina línu og eru upplýsingar um þau á starfsmannasíðu.

Vegna þessara flutninga má búast við einhverri truflun á daglegri starfsemi fyrirtækisins föstudaginn 6.maí og mánudaginn 9.maí. Við vonum að þetta valdi engum óþægindum og bendum á að alltaf verður hægt að ná í starfsmenn í GSM-síma. Númerin eru á starfsmannasíðu.

Dags.06.05.05

Nýtt símanúmer
VJI hefur tekið í notkun nýtt símanúmer sem er 560-5400 sem og nýtt faxnúmer sem er 560-5410.
Einnig hafa allir starfsmenn fengið beint símanúmer til að gera öll samskipti og samskiptaleiðir einfaldari.
Bein símanúmer starfsmanna er að finna á starfsmannasíðu undir hlekknum "starfsmenn", með því að renna músarbendlinum yfir nöfn starfsmanna birtast upplýsingar um símanúmer og netfang viðkomandi. Einnig er hægt að smella með músarbendlinum á nafnið og fá nánari upplýsingar um þann starfsmann sem valinn er.

Dags.31.03.05

Hraunvallaskóli í Hafnarfirði
Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar ehf. mun annast verkfræði hönnun ásamt Hönnun hf á Hraunvallaskóla í Hafnafirði. Verkfræðihönnunin innifelur hönnun á raflögnum, burðarvirkjum, hreinlætis- og hitalögnum sem og loftræsingu. Arkitektar skólans eru Á stofunni - arkitektar.

Hraunvallaskóli verður byggður fyrir allt að 700-750 börn. Strax næsta haust tekur skólinn til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum þar sem kennsla yngstu nemendanna í 1.-4. bekk mun fara fram en þau eldri fara í Áslandsskóla eða aðra skóla í Hafnarfirði. Kennsla í Hraunvallaskóla hefst haustið 2006 og munu þá 1.-7. bekkur geta sótt kennslu þar. Leikskólinn verður opnaður um mitt ár 2006.

Dags.30.03.05

VJI flytur í nýtt og stærra húsnæði
VJI
flytur í nýtt húsnæði í apríl næstkomandi. Heimilisfang VJI verður það sama þar sem að við flyjum einungis í næsta hús þ.e. á jarðhæð efra hússins að Síðumúla 1.

Nýtt símanúmer VJI er 560 5400 og nýtt fax númer 560 5410. Bein símanúmer starfsmanna og GSM númer verða birt á starfsmannasíðunni.
Dags.11.03.05

Framkvæmdastjóri VJI sest í stjórn Rafstaðlaráðs.
Á aðalfundi Rafstaðlaráðs nýverið var Magnús Kristbergsson kosinn í stjórn ráðsins.
VJI hefur ávallt fylgst vel með aðþjóðlegum og innlendum stöðlum til að tryggja að hönnun sé ávallt samkvæmt nýjustu kröfum og má í því sambandi nefna að Jóhann Indriðason stofnandi VJI hefur verð fulltrúi VFÍ í Rafstaðlaráði í mörg ár.

Dags.11.03.05

Atlantsolía opnar fyrstu sjálfsafgreiðslustöðina í Reykjavík
Fyrir skömmu opnaði Atlantsolía sína fyrstu sjálfsafgreiðslustöð í Reykjavík við Sprengisand. Framkvæmd verksins tókst í alla staði mjög vel og var stöðin byggð á þrem mánuðum sem var tveimur vikum á undan áætlun.
VJI ásamt Hönnun og teiknistofunni Tröð sáu um hönnun verksins en framkvæmdir voru í höndum Verktakar Magni ehf.

Framkvæmdir eru einnig hafnar að nýrri sjálfsafgreiðslustöð Atlantsolíu í Reykjanesbæ, en stöðin verður alsjálfvirk með átta dælum fyrir bensín og díselolíu og tæknilega fullkomin bæði hvað varðar öryggis- og mengunarvarnarbúnað. Stöðvar Atlantsolíu eru útbúnar með afsogunarbúnaði sem þéttir bensíngufur þannig í stað þess að fara út í andrúmsloftið verða þær að eldsneyti að nýju.
VJI ásamt Hönnun og teiknistofunni Tröð sáu um hönnun verksins en framkvæmdir verða í höndum Verktakar Magni ehf.

Dags.11.03.05

Nýr starfsmaður hefur störf hjá VJI
Stefán Birnir Sverrisson hóf störf hjá VJI þann 1. september síðastliðinn. Stefán er menntaður rafmagnsverkfræðingur M.Sc. frá háskólanum í Álaborg. Starfsvið Stefáns verður að mestu leyti í hönnun smáspennukerfa hverskonar s.s öryggis-, síma, tölvu, eftirlits og brunaviðvörunarkerfa svo eitthvað sé nefnt. Starfsfólk VJI býður Stefán velkominn í hópinn.
Dags.10.09.04