Fréttir frá árinu 2009

VJI aðstoðar við samning um orkukaup

Orkubú Vestfjarða hefur nýlega gert samning við Íslenska kalkþörungafélagið ehf um sölu á raforku til þurrkunar á kalkþörungum í verksmiðju félagsins á Bíldudal.  Fram til þessa hefur Kalkþörungaverksmiðjan notast við gas til þurrkunar.  Umfang samningsins sem er til tveggja ára er allt að 10,5 GWh á ári og hámarksafl um 3 MW. Jafnframt hefur sölusvið OV gert samning við Orkuveitu Reykjavíkur til sama tíma um kaup á orku til að mæta orkuþörf Kalkþörungaverksmiðjunnar. 
Gert er ráð fyrir að orkuafhending hefjist í  9. viku ársins 2010. VJI ráðlagði Kalkþörungarverksmiðjunni í þessu máli. 


Sigurður R. Helgason frá Kalkþörungaverksmiðjunni,
Eymundur Sigurðsson og Kristján Haraldsson Orkubústjóri.

nóvember 2009


Sjálandsskóli vígður


Í dag var Sjálandsskóli vígður með pompi og prakt. Fjöldi skólabarna, foreldrar þeirra og aðrir velunnarar skólans sóttu hann heim á þessum tímamótum. Á næsta skólaári munu 236 nemendur stunda nám við skólann sem er fjölgun um 55 nemendur frá fyrra ári. Auk þess stunda 50 nemendur nám við Alþjóðaskólann sem starfræktur er í sama húsnæði.

ÍAV hóf byggingu við annan áfanga skólans í júní 2008 og fól verkefnið í sér stækkun um 3000 fermetra. Í nýju byggingunni er að finna sundlaug, fjölnota íþróttasal, tónmenntastofur, hljómsveitarherbergi, mötuneyti og hátíðarsal. Þess má geta að ÍAV sá einnig um byggingu fyrsta áfanga skólans en þá var byggt 4000 fermetra húsnæði og lauk þeirri vinnu haustið 2005. Með tilkomu annars áfanga skólans er aðstaða til náms og kennslu í Sjálandsskóla með því besta sem þekkist. ÍAV óskar nemendum og starfsfólki skólans til hamingju með bygginguna.
ágúst 2009

 

Nýr starfsmaður

Ólöf Helgadóttir kom nýlega til starfa hjá VJI sem háspennuverkfræðingur.
Ólöf útskrifaðist vorið 2008 með M.Sc. próf í rafmagnsverkfræði frá New York Polytechnic University þar sem hún rannsakaði með aðstoð greiningarforritsins PSS/E svipula hegðun raforkukerfis þegar jarðvarmavirkjun er tengd inn á það. Áður starfaði hún m.a. við kerfisgreiningu og áætlanagerð flutningskerfisins hjá Landsvirkjun og Landsneti um nokkurra ára skeið eftir að hún lauk B.Sc. prófi í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands.   Ólöf er góður liðsauki fyrir vaxandi orkuráðgjafarsvið VJI.  Við bjóðum Ólöfu velkomna í hópinn.
maí 2009  


Fyrsta skóflustunga 3. apríl 2009

Samtök aldraðra eru nú að hefja byggingu tveggja fjölbýlishúsa á horni Sléttuvegar og Háaleitisbrautar, nánar tiltekið Sléttuvegur 29-31. Í húsinu verða 58 íbúðir, 2ja og 3ja herbergja, auk bílastæða í bílgeymslu fyrir allar íbúðir.   Sléttuvegur 29 er fjórar hæðir með 24 íbúðum, allar 3ja herbergja.  Sléttuvegur 31, sem liggur niður með Háaleitisbraut, verður fimm og sex hæðir með 34 íbúðum, 2ja og 3ja herbergja.   Húsið teiknar Guðfinna Thordarson arkitekt hjá Arkhúsinu ehf.
VJI sér um alla raflagnahönnun og Atafl byggir húsið.

















Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi tekur hér fyrstu skóflustunguna undir styrkri leiðsögn sóknarprestsins í Grensássókn, séra Ólafs Jóhannessonar.



 

 

 

 

 


Fjölmenni var við athöfnina. Hér sést í baksýn hús Samtaka aldraðra við Sl éttuveg 19-23 sem tekin voru í notkun árið 2007. VJI sá einnig um raflagnahönnun í þeirri framkvæmd.
8. apríl 2009



VJI hannar raflagnir í Stofnun Árna Magnússonar

Hönnun á nýju húsi fyrir Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er hafin.  Húsið mun rísa á lóð Háskóla Íslands norðan Suðurgötu.  Grundvöllur hönnunarinnar er tillaga Hornsteina arkitekta ehf., og Almennu verkfræðistofunnar hf. sem var vinningstillaga í samkeppni sem haldin var árið 2008, með sérstæðri sporöskjulaga grunnmynd og útveggjum skreyttum handritatextum. Við hönnunina verða viðhafðar athyglisverðar nýjungar við verklag hérlendis.  Þessar nýjungar felast í notkun byggingaupplýsingalíkans BIM (Building Information Modelling) og dönsku skilmálanna „bips" (byggeri, informationsteknologi, produktivitet og samarbejde).  Hönnun og framkvæmd verður sérstaklega miðuð við vistvæn sjónarmið samkvæmt hinni bresku BREEAM aðferð (Building Research Establishment Environmental Assessment Method).  Tímaáætlun hönnunar gerir ráð fyrir að líkan með aðaluppdráttum verði lagt fram til samþykktar í september 2009 og líkan með verkhönnun í september 2010.

Verkkaupi er menntamálaráðuneytið. Umsjón með verkefninu hefur Framkvæmdasýsla ríkisins.  Ráðgjafar eru hönnunarteymi Hornsteina arkitekta ehf. og Almennu verkfræðistofunnar hf. ásamt samstarfsráðgjöfum, þar á meðal VJI sem annast mun raflagnahönnunina í þessu mikilvæga húsi sem geyma mun bókmenntalegar gersemar þjóðarinnar.

Frekari upplýsingar um verkefnið má finna hér: Stofnun Árna Magnússonar
19. janúar 2009