Fréttavefur VJI
Hjúkrunarheimilið Mörkin
Þriðjudaginn 28. september var hjúkrunarheimilið Mörk að Suðurlandsbraut 66 opnað formlega með vígsluathöfn. Á heimilinu eru 110 hjúkrunarrými og er sérstaklega hugsað að þörfum hreyfihamlaðra, heilabilaðra, aldraðra með geðræn vandamál o.þ.h. Um rekstur heimilisins sér Dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund. Arkitektar eru Yrki ehf, VJI sá um raflagna- og lýsingarhönnun, Landslag ehf sá um landslagshönnun og Mannvit um burðarþols- og lagnahönnun.
Nú þegar hafa um 80 vistmenn flutt inn í heimilið frá Vífilsstöðum, Víðinesi og Landspítalanum. Heimilið verður rekið með Eden hugmyndafræðina að leiðarljósi en hún miðar að því að einstaklingurinn haldi sjálfræði sínu sem lengst með aðstoð starfsfólksins en búi jafnframt við það öryggi sem fylgir því að búa á hjúkrunarheimili. Heimilismenn koma með það sem þeir kjósa að heiman, s.s. húsgögn, myndir, gluggatjöld og þess háttar og lögð áhersla á að aðstandendur taki virkan þátt í heimilishaldi. Ákvarðanir um daglegt líf heimilisfólks tekur fólkið sjálft með aðstoð starfsfólksins.

Borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, heldur ræðu í tilefni af opnun hjúkrunarheimilisins.
Að auki verður þjónusta hjúkrunarheimilisins samnýtt með Mörkinni, en það eru 78 íbúðir fyrir 60 ára og eldri við Suðurlandsbraut 58-62.
VJI óskar starfsmönnum og vistmönnum innilega til hamingju með hjúkrunarheimilið.
Laugavegur 4-6
Reykjavíkurborg hefur samið við VJI um hönnun raflagna við endurbyggingu húsa við Laugavega 4 og 6.

Laugavegur 4 var byggður árið 1890, sem einnar hæðar timburhús með lítt niðurgröfnum kjallara og rishæð. Laugavegur 6 var byggður árið 1871, sem einlyft timburhús með rishæð.
apríl 2010
Gæðakerfi VJI
VJI hefur samið við Gunnar H. Guðmundsson hjá 7.is um ráðgjöf við að undirbúa gæðastjórnunarkerfi VJI til vottunar. Stefnt er að því að allur rekstur stofunnar verði vottaður seint á þessu ári eða byrjun þess næsta.
Í gengum árin hefur verið unnin mikil vinna í gæðamálum hjá VJI en nú á afmælisárinu skal málið tekið föstum tökum með aðstoð Gunnars og gæðastjórnunarkerfinu komið í vottun.
mars 2010
Sjúkrahús á Ásbrú
 |
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar (Kadeco) hefur samið við VJI um hönnun rafkerfis í byggingu nr. 710 á Ásbrú en þar mun koma sjúkrahús með sérhæfða skurðstarfssemi. Byggingin hýsti áður sjúkrahús bandaríska hersins og er gólfflötur byggingar u.þ.b. 4.000 fermetrar. |
Skipt verður um allt rafkerfi hússins skv. nýrri hönnun VJI. Í þessu verkefni mun hin mikla reynsla er starfsmenn VJI hafa á „sjúkrahúsrafmagni“ nýtast vel en þess má geta að VJI hefur hanna rafkerfi fyrir Landspítalann um árabil.
febrúar 2010
Nýr starfsmaður
Helena Sigurðardóttir hóf nýlega störf hjá VJI sem iðnaðarverkfræðingur. Hún lauk M.Sc. prófi í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2009 með sérstaka áherslu á fjármálagreiningu, arðsemismat og þróun hagnýtra reiknilíkana. Lokaverkefnið fjallaði um greiningu á samkeppnishæfni íslenskra álvera og beitt var aðferð sem nefnist Analytic Hierarchy Process.
Helena hefur starfað hjá Alcoa Fjarðaáli sem sérfræðingur við hagræðingarverkefni og verkstjórn í kerskála. Þá starfaði hún hjá HRV verkfræðistofu meðal annars við gerð útboðsgagna og verkefnastjórnun og einnig nokkur sumur hjá verkfræðistofunni Verkís við kostnaðaráætlanir og kostnaðareftirlit.
Ásamt öðrum vann Helena nýlega úttekt á stöðu áhættugreiningar og áhættustjórnunar í íslenskum orku- og veitufyrirtækjum og fékk til þess styrk frá Umhverfis- og orkurannsóknasjóði Orkuveitu Reykjavíkur.
Sérsvið Helenu eru áhættugreining, fjármál, arðsemismat, áætlanagerð og verkefnastjórnun. Við bjóðum Helenu velkomna í hópinn.
janúar 2010
VJI 50 ára!
|
Í ár eru 50 ár liðin síðan Jóhann Indriðason rafmagnsverkfræðingur hóf sjálfstæða ráðgjöf á rafmagnsverkfræðisviði. Fyrst starfaði hann undir eigin kennitölu en árið 1983 var stofnað hlutafélag um reksturinn.
Fyrstu 45 árin var starfssvið stofunnar eingöngu á rafmagnsverkfræðisviði við hönnun og eftirlit á ýmis konar rafkerfum s.s. fyrir byggingar, orkuver og stjórnkerfi. Síðustu 5 árin hefur einnig verið unnið á rekstrarsviði við ýmis konar rekstrartengd ráðgjafarverkefni.
Í gegnum árin hafa viðskiptamenn VJI verið fjölmargir innlendir og erlendir aðilar, bæði í einka- og opinbera geiranum. Samstarfið hefur ávallt gengið vel fyrir sig enda hefur það ávallt verið eitt að höfuð gildum starfsmanna VJI að setja viðskiptavininn í öndvegi.
|
Miklar breytingar hafa að sjálfsögðu orðið á starfsaðferðum verkfræðinga á þessum tímum þó eðlisfræðin hafi á þessu sviði haldist óbreytt þennan tíma. Mest munar um tölvurnar sem hafa létt sporin mikið í reikningum, ritsmíðum og teiknivinnu.
Þessum tímamótum mun verða fagnað á ýmsan átt á árinu, bæði meðal starfsmanna og með viðskiptavinum.
janúar 2010
Fréttir frá árinu 2009
Eldri fréttir
|