Áhugavert efni
Betri nýting skilar viðbótarorku
Rætt við Jónas Matthíasson og Magnús Kristbergsson, tvo af hönnuðum nýs orkuvers Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi
Um miðjan desember á síðasta ári var ný 30 MW viðbót við orkuver Hitaveitu Suðurnesja (HS) í Svartsengi, Orkuver 6, tekið í notkun. Stöðvarhús Orkuvers 6 er norðan við önnur orkuver í Svartsengi á þeim stað sem Bláa lónið var upphaflega. Ákvörðun um að ráðast í nýtt orkuver á Svartsengissvæðinu var tekin árið 2005 og í kjölfar útboðs var í byrjun árs 2006 samið við Fjarhitun, VTR verkfræðinga, Verkfræðistofu Suðurnesja, OÖ arkitektastofuna og Landark um alla hönnun orkuversins.
Sjá alla greinina
Auknar kröfur um lýsingu
Rétt lýsing og góð sjónskilyrði gegna lykilhlutverki í híbýlum manna hvort sem það eru heimili eða atvinnuhúsnæði. Lýsingin er mikilvæg öryggisins vegna en á einnig þátt í að skapa stemmningu og gott andrúmsloft. Slæm lýsing getur á hinn bóginn haft óheppileg áhrif á heilsu fólks og rafmagnsreikninginn. Því er mikilvægt að skipuleggja lýsingu í samráði við fagmenn og í samræmi við þarfir og virkni.
Sjá alla greinina
Nýting ofurleiðara til framleiðslu og flutnings raforku
Í þessu greinarkorni ætla ég að stikla á stóru varðandi notkun ofurleiðara í raforkukerfum. Einnig minnist ég eilítið á þróun ofurleiðaratækni á nýliðinni öld. Tilgangurinn með þessum skrifum er eingöngu að gefa áhugasömum lesendum stutt yfirlit yfir hvað er að gerast í þessum málum í heiminum í dag auk þess sem örstutt kynning á háhitastigsofurleiðurum fylgir með í lokin.
Sjá alla greinina
|